Fórum á Rjúpu á besta stað á landinu Munaðarnes í Ingólfsfirði, með í för voru ég (Pétur), Guðni Hrafn(sonur minn), Pabbi(Raggi), Jenni(bróðir), Karina(Norska kærastan hans Jenna), Steinar(bróðir) og Eyþór( sonur Guðný Önnu systir), fórum á fimmtudagskvöldi og keyrðum í drullumalli alla leiðina.
Á föstudagsmorgun fórum við svo á Munaðarnesfjallið að leita að Rjúpu ég og Guðni löbbuðum saman en sáum enga rjúpu okkur til mikilar mæðu, en Jenni og Karina náðu 4 og Steinar náði 5 kvikindum.
Á laugardeginum var svo skíta veður og ekki hundi út siðandi svo við lágum bara yfir lethal wepon 1,2,3 og 4 náði nú ekki öllum samt og spiluðum á spil.
Á sunnudeginum var svo farið að lýta til vedurs og færðar og lagt af stað i bæinn en við stoppuðum nú samt í dal einum á leiðinni og fengum okkur smá göngutúr og viti menn ég og Guðni fundum eina Rjúpu sem Guðni skaut með byssuni hans Ella og þökkum við honum fyrir lánið á vopninu.
Hér fyrir neðan koma svo myndir úr ferðinni en ég var frekar latur á myndavélinni.

Guðni tilbúinn í veiðarnar.

Guðni upp á brún á Munaðarnesfjalli með Drangaskörðin í bakgrunni.

Steinar bróðir stolltur af bráðinni.

Steinar Bróðir mynd 2 en hann skaut mest í ferðinni eða 5 Rjúpur og þetta voru fyrstu Rjúpurnar sem hanm hefur veitt.

Vonda veðrið séð útum gluggan á bústaðnum.

Komst að því að þetta er nauðsynlegur drykkur bæði eftir langan göngudag og líka til afdreps í vondu veðri.

Hér er ein mynd tekin í Norðurfirði áður en við leggjum af stað heim.

Þessi var tekinn á leiðinni heim man ekkert hvar þetta er.